FJÁRFESTATENGSLNASDAQ OMX býður upp á þjónustu á sviði fjárfestatengsla sem ætlað er að auðvelda félögum að eiga samskipti við greiningaraðila og fjárfesta og uppfylla jafnframt kröfur um stjórnarhætti og upplýsingaskyldu. Dreifing fréttatilkynningaFréttaþjónusta NASDAQ OMX, GlobeNewswire, býður upp á sérsniðnar lausnir fyrir skráð félög á Norðurlöndunum, jafnt sem í Eystrasaltslöndunum. Boðið er upp á þægilega dreifingu frétta af félögum, afkomutilkynninga og fréttatilkynninga til fjárfesta, blaðamanna, fréttastöðva, vefsvæða og sérfræðinga um allan heim. NASDAQ OMX býður upp á faglega aðstoð fulltrúa á Íslandi og sér til þess að fréttir berist hratt og örugglega. Product sheet Veflausnir á sviði fjárfestatengslaShareholder.comSM, sem er hluti af NASDAQ OMX, býður upp á heildrænar lausnir, sem kallast Webcenter360, við gerð stórra fjárfestatengsla-vefsíðna. Webcenter360 auðveldar samskipti milli félaga, hluthafa þeirra og fjárfesta, og býður upp á samstilltan búnað fyrir fjárfestatengsl. Veflausnir okkar innihalda gagnvirkar aðgerðir sem gera fjárfestum kleift að nýta sér vefsvæði félagsins þíns til fulls. Product sheet NASDAQ OMX býður ennfremur smærri félögum upp á stakar einingar sem auðvelda þeim að setja fjárfestaupplýsingar inn á heimasíður sínar, bæði á eigin tungumáli og á ensku. NetvarpNASDAQ OMX gerir félögum kleift að netvarpa kynningum, fréttum og blaðamannafundum og auka þannig sýnileika þeirra meðal fjölmiðla, greiningaraðila og fjárfesta á skilvirkan og sannfærandi hátt. Áhorfendur geta séð netvarpsþætti í beinni útsendingu, eða sótt þá þegar þeim hentar, á vefsvæði NASDAQ OMX og á heimasíðum félagsins. Read more » GreiningarþjónustaMeð samstarfi við óháð greiningarfyrirtæki vinnur Greiningarþjónustan að því að lítil norræn félög fái meiri athygli og verði sýnilegri meðal almennra fjárfesta. Þjónustan felst í skýrslum greiningaraðila og viðtölum við forstjóra sem eru birt á ýmsum norrænum fjármálasíðum á netinu. Read more » |
Other Corporate Solutions
Contact us
|















Feedback